Boltinn Lýgur Ekki: Justin Shouse opnar sig, Vængjaveisla í Garðabæ, Grindavík í úrslit og Clippers eru að hrauna yfir NBA tímabilið.
Véfréttin fékk snarbikaróðan fjórfaldan bikarmeistara, Justin Shouse, til sín í Vesturbæinn til þess að fara yfir komandi bikarveislu, tala um Dominosdeildina og taka vænan skammt af NBA.
Í fyrri hlutanum var talað um Vængina sem Justin og félagi hans Lýður eru að gera, farið yfir bikarhelgina, hvort Grindavík eða Fjölnir eigi breik, hvort miðherjar Tindastóls geti haldið í við stjörnustrákana, hvort KR séu hættulegasta liðið í úrslitakeppninni, hvaða leikstjórnendur Justin heldur uppá í deildinni og margt fleira.
Í NBA hlutanum var komið vel inn á Lakers og þeirra þarfir, vasaútgáfuna af körfuboltaliði sem Houston Rockets eru að bkjóða uppá, Jayson Tatum, Kyle Kuzma og Luol Deng skotið hans, hver klárar austrið í 2. sæti og margt fleira.
Litríkur leikmaður vikunnar var leikmaður Showtime liðs Los Angeles Lakers á níunda áratug síðustu aldar, Kurt Rambis. Með honum fylgir lag Mötley Crüe, Kickstart My Heart, en líkt og Rambis, er gítarleikari sveitarinnar Mick Mars frá 60 þúsund manna borginni Terre Haute í Indiana fylki Bandaríkjanna.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Dagskrá:
00:00 Hjal og Vængir
09:20 Kurt Rambis
14:25 Bikarinn
46:55 Dominosdeildin
01:11:10 NBA
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






