Boltinn Lýgur Ekki: Áramótasprengja - Orðljótur Svali í stúkunni, Gullfallegur Jón Arnór og Jólaafhroð Véfréttarinnar
Boltinn Lýgur Ekki tók sig að sjálfsögðu til og hlóð í áramóta og uppgjörsþátt eins og öll betri hlaðvörp landsins gera.
Saltaðir og reyktir mættu Tómas Steindórsson og Guðmundur Auðun Gunnarsson og fóru ásamt véfréttinni yfir það hvað og hverjir sköruðu framúr á fyrri hluta tímabilsins í Dominos deildinni.
Farið var yfir bestu leikmenn tímabilsins hingað til, besta þjálfarann, besta dómarann, best klædda leikmanninn, lið ársins og margt fleira.
Í NBA hluta þáttarins þá var farið yfir afhroð véfréttarinnar í jóladagsspánni, hvort DeAndre Ayton eigi sér viðreisnar von, hvort Jaylen Brown sé Paul George eða Harrison Barnes, hvort Clippers séu bara með Lakers og margt fleira.
Hver þáttur af Boltinn lýgur ekki er tileinkaður einum litríkum karakter og að þessu sinni er það Dennis Rodman og honum fylgir tónlist frá heimaslóðum hans í New Jersey.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Boltinn Lýgur ekki þakkar frábærar viðtökur og hlakkar til þess að vera með ykkur á nýju ári.
Dagskrá:
00:00 - Létt hjal
02:30 - Dennis Rodman er knucklehead vikunnar
07:30 - Dominos Uppgjörið
48:30 - Árámótaplön strákanna og matarhorn Véfréttarinnar (smá Keflavíkur innskot)
52:00 - Heimshornið
53:00 - NBA
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






