Boltinn Lýgur Ekki: Furðulegt íbúalýðræði að Hlíðarenda og væll í Dominique Wilkins
Boltinn Lýgur Ekki fékk tvo góða gesti til þess að rýna í stöðuna í körfuboltaheiminum um þessar mundir. Þeir Guðmundur Auðun Gunnarsson AKA Gauðun og Tómas Steindórsson AKA "Sá Raunverulegi" mættu í spjall til Véfréttarinnar.
Hin ýmsu málefni fengu pláss. Meðal annars vesenið í KR, frábæran sigur Þórs Akureyri, stórfurðulegt íbúalýðræði í VAl, hvort Tindastóll sé besta lið deildarinnar í augnablikinu eða hvort það eru Stjörnumenn, sem eru aldeilis að fá liðsstyrk.
Þá nýtti þáttarstjórnandi tækifærið að vera með tvo sérfræðinga í málefnum fyrstu deildarinnar með sér og var sú frábæra deild krufin aðeins, eru Hamar að fara að klára þetta eða munu Höttur eða Breiðablik spilla fyrir þeim Ungverska.
NBA deildin fékk að sjálfsögðu sinn sess, enda besta deild veraldar. Við skoðuðum hvort að nokkurt austurlið geti elt Milwaukee Bucks, hvort Toronto séu alvöru contender, hvers vegna austrið er svona lélegt og hvort að Luka Doncic sé ekki með mestu framfarirnar í vasanum.
Hver þáttur af Boltinn lýgur ekki er tileinkaður einum litríkum karakter og að þessu sinni er það Rajon Rondo.
Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






