Mantas - "Frábært að finna gleðina aftur í körfubolta"
Viðtalsefni Körfunnar að þessu sinni er Mantas Mockevicius. Mantas gekk inn í Sláturhúsið á undirbúningstímabilinu og spurði þjálfara Keflavíkur, Sverri Þór Sverrisson, hvort hann mætti vera með. Hann reyndist vera fyrrverandi yngri landsliðsmaður frá Litháen og hafði spilað víða.
Hann hefur tekið Keflavík ástfóstri og segist hafa fundið leikgleðina aftur eftir að hafa sagt skilið við körfubolta skömmu eftir tap fyrir U20-liði Ítalíu sem þjálfarinn kenndi honum um. Hann ræðir árin á milli yngri landsliðanna og Keflavíkur og segir frá hvert hann hvarf í nóvember og desember mánuði.
Við spjöllum um íslensku úrvalsdeildina, íslenska leikmenn og íslenska náttúru. Mantas finnst að tilfinningar eigi heima á vellinum og spjallar um búningsklefann hjá Keflavík. Hann endar viðtalið á bombu sem birtist seinna á Körfunni! Njótið vel!
Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson
00:00:30 - Þegar Mantas gekk inn á æfingu hjá Keflavík.
00:02:30 - Hvar karfan byrjaði hjá Mantas.
00:06:00 - Íslenskur körfubolti samanborinn við litháenskan körfubolta.
00:08:10 - Mindaugas og Mantas.
00:13:15 - Árin á milli U20-liðsins og Keflavíkur.
00:19:20 - Hvert fór Mantas í nóvember og desember?
00:21:55 - Tilfinningar á vellinum og móralinn í búningsklefanum.
00:24:30 - El Clasico og hin liðin í deildinni.
00:28:40 - Nýja Evrópureglan frá Mantasi séð.
00:31:45 - Mantas utan vallar
00:34:45 - Mantas tekur yfir Keflavík!
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






