Aukasendingin: Óstöðvandi Stólar, villusæknir Stjörnumenn og og hin geggjaða Dinkins

· Íþróttir, Fréttir

Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fær góðkunningjana Árna ,,Striker" Jó og Jónfrí í heimsókn. 
Farið er yfir sviðna jörð í átta liða úrslitum Bónus deildar karla þar sem rætt er um hve villusækið lið Stjörnunnar er og af hverju Tindastóll virkar líklegasta liðið til stórræða þessa stundina. Spennan í kvennaboltanum er sömuleiðis á borðinu, sérstaklega rosalegur endir á leik Njarðvíkur og Tindastóls þar sem Brittany Dinkins sýndi enn og aftur að hún er hreinlega geggjuð á vellinum. 
Þá velur þríeykið fimm bestu íslensku og fimm bestu erlendu leikmenn úrslitakeppninnar hingað til á tveimur ólíkum listum. Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna

Karfan

Úr hlaðvarpinu

Karfan

Karfan

Allir þættir

Fleiri þættir af Karfan