Aukasendingin: Töfrar Kára Jónssonar, Stólarnir í stuði og skipbrotið í Garðabæ
Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fékk góðkunningja þáttarins Jónfrí í heimsókn. Í þættinum er kafað djúpt í nýjustu vendingar í úrslitakeppni Bónus deildarinnar, þar sem skipbrot KR í Garðabæ er tekið fyrir og rýnt í hvað fór úrskeiðis hjá Vesturbæingum gegn Stjörnunni. Þá er farið yfir hvernig Tindastóll kláraði einvígið gegn ÍR og sendi Breiðhyltinga í snemmbúið sumarfrí með sannfærandi hætti.
Seiðkarlinn Kári Jónsson fær verðskuldað pláss í umræðunni eftir ótrúlega sigurkörfu sína fyrir Val, sem minnti á hvers vegna hann er besti leikmaður deildarinnar þegar mikið liggur við. Að lokum er staðan tekin á Njarðvík, en þríeykið veltir því fyrir sér hvort tímabilið sé hreinlega búið hjá þeim miðað við hvernig spilin hafa spilast að undanförnu.
Þá er einnig farið yfir nokkur af skemmtilegustu augnablikum úrslitakeppninnar til þessa.
Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






