Aukasendingin: Eru Stólarnir óstöðvandi, Grindavík í gírnum og snýr Remy Martin aftur?
Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar rýna Strikerinn og Jónfrí í spennandi undanúrslit Bónus deildarinnar þar sem nóg er um að vera. Helsta spurningin sem brennur á mönnum er hvort Stjörnumenn geti staðið af sér storminn gegn firnasterku liði Tindastóls, sérstaklega þar sem þeir verða án lykilmannanna Ægis Þórs og Orra Gunnarssonar. Á sama tíma er velt upp hvort Valur mæti með aukna orku og sjálfstraust inn í einvígið gegn Grindavík eftir að hafa haft betur í krefjandi fimm leikja seríu gegn Keflavík, eða hvort þreytan fari að segja til sín gegn deildarmeisturunum.
Umræðan snýst einnig að því hvort Grindavík geti haldið sínu striki og haldið áfram að vinna mikilvæga leiki eða hvort Stólarnir séu einfaldlega á þeim stað að þeir muni rúlla yfir alla mótstöðu á leið sinni að titlinum. Sérfræðingarnir fara yfir styrkleika Tindastóls sem virðist vera að toppa á réttum tíma en spá líka í spilin hjá þeim liðum sem eru komin í sumarfrí. Sérstök athygli er beind að Keflavík og hvaða breytingar þurfi að eiga sér stað í herbúðum þeirra í sumar til að liðið geti aftur blandað sér af alvöru í baráttuna um stóru titlana á næsta tímabili.
Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






