Aukasendingin: Allt logar í úrslitakeppninni – Oddaleikir, slagsmál og djúpfalsað efni
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó mæta til leiks í hljóðverið. Það er af nógu að taka enda úrslitakeppni Bónus-deildanna í hámarki. Farið er yfir ótrúlegan viðsnúning í undanúrslitum karla og kvenna þar sem Stjarnan og Grindavík hafa bæði misst niður 2-0 forystu í 2-2 gegn Tindastóli og Njarðvík. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi oddaleiki, en þrír af fjórum undanúrslitum deildanna ráðast í hreinum úrslitaleikjum sem undirstrikar þá gífurlegu spennu sem ríkir þessa dagana.
Auk ítarlegrar yfirferðar um gang mála á vellinum er rýnt í málin utan hans. Strákarnir gagnrýna aðgang blaðamanna að leikjum, taka góða dýfu í dómaraumræðuna og fara yfir skuggahliðar stemningsinnar, þar á meðal átök stuðningsmanna á bílastæðinu í Garðabæ. Þátturinn er þó ekki eingöngu helgaður íþróttum því sveitastjórnarkosningar ber á góma, Jónfrí kynnir nýja lagið sitt „Djúpfalsað efni“ og slúðurhornið er á sínum stað þar sem farið er yfir það sem er að gerast bak við tjöldin í boltanum.
Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






