4. Hvað ef þú passar ekki í boxið?
Við komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í febrúar, sem sagt ekki á sama tíma og önnur ungmenni. Og það eru ekki óskir þeirra sem hafa mest um það að segja í hvaða skóla þau fá inngöngu í heldur er það fötlunin. Hvort þau passa inn í boxið sem skólinn getur boðið þeim upp á. Í þættinum er einnig fjallað um fjölbreytt námsmat. Viðmælendur í fjórða þætti Kaflaskila eru: Anna Björk Sverrisdóttir, Anna Kristín Sigurðardóttir, Gunnar Gíslason, Ívar Rafn Jónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Ómar Örn Magnússon og nemendur í tíunda bekk Laugalækjarskóla.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fleiri þættir af Kerfið
- Betrun 2. þáttur – Brennimerktir og ærulausir6. október 2026
- Betrun 1. þáttur – Íslendingar í dönskum þrælakistum29. september 2026
- 5. þáttur - Börn sem hafa sérstöðu16. júní 2026
- 4. þáttur - Ræður kerfið við verkefnið?9. júní 2026
- 3. þáttur - Staðan versnar bara2. júní 2026
- 2. þáttur - Barist fyrir lífi barnsins26. maí 2026
