Kerfið

RÚV Hlaðvörp

PólitíkLandið

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir Framleiðsla: Rás 1 Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Betrun 2. þáttur – Brennimerktir og ærulausir

Aðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem aldrei höfðu gerst sekir um óráðvendni. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Betrun 1. þáttur – Íslendingar í dönskum þrælakistum

Málefni fanga í nútíð og fortíð eru umfjöllunarefni þáttaraðarinnar Betrun. Í þáttunum er meðal annars fjallað um Íslendinga sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar á átjándu og nítjándu öld. Meirihluti þeirra átti ekki afturkvæmt og endaði ævina í Stokkhúsinu enda aðbúnaðurinn þar skelfilegur. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson, Hrannar Hólm, Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

5. þáttur - Börn sem hafa sérstöðu

Börn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum heimi. Viðmælendur í þættinum eru: Guðbjörg Rut Þórisdóttir, Meyvant Þórólfsson og Sara Rós Kristinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

4. þáttur - Ræður kerfið við verkefnið?

Kerfið er fyrir meðaltalsnemandann sem getur ákveðna hluti en þeir sem ráða ekki við það verkefni eiga á hættu að falla á milli kerfa. Börn sem eru á biðlistum eru með skilgreindan vanda en það vantar nákvæma skilgreiningu á hvers eðlis hann er. Þegar loksins kemur að lokagreiningu hefur barnið jafnvel beðið í fimm ár, fyrst eftir forgreiningu hjá sveitarfélagi og síðan hjá ríkinu. Viðmælendur í þættinum eru Bóas Valdórsson og Sigurður Árni Reynisson. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

3. þáttur - Staðan versnar bara

Embætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar barna sem teljast til staðalfrávika frá meðaltalinu á normalkúrfunni. Gestir þáttarins eru Salvör Nordal og Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

2. þáttur - Barist fyrir lífi barnsins

Það tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Helga Guðmundsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

1. þáttur - Börn og biðlistar

Börnin sem passa ekki inn í kerfið, börnin á biðlistum. Börnin sem þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en önnur í almenna skólakerfinu. Börnin sem eru á jaðrinum. Þetta eru börnin sem þurfa mest á öflugu kerfi að halda. Kerfi sem ekki hafnar þeim heldur styður þau. Anna-Lind Pétursdóttir og Kristján Ketill Stefánsson eru viðmælendur í þættinum en Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

5. þáttur - Verkmennaskólinn á Akureyri

Verkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, er einn stærsti iðn- og verkmenntaskóli landsins. Eins og víða annars staðar er kennt í öllum skúmaskotum en stjórnendur skólans hugsa í lausnum og eru í góðu samstarfi við vinnustaði á Akureyri þar sem hluti kennslunnar fer fram. Viðmælendur í þættinum eru: Ásta Fönn Flosadóttir, Benedikt Barðason, Elsa Eiríksdóttir, Gunnar Möller, Jóhann Gunnar Jóhannsson og Kristjana Stella Blöndal. Auk þess er rætt við nemendur í VMA. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

4. þáttur FSu og MK

Íslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem þýðir að fáir 18 ára og eldri komast inn í vinsælustu greinarnar. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Haraldur Sæmundsson, Soffía Sveinsdóttir, Sigursveinn Sigurðsson og Stella Blöndal. Jafnframt er rætt við nemendur Matvælaskólans og gesti á opnu húsi í MK. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

3. þáttur Tækniskólinn

Aukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og býður upp á fjölbreytt starfsnám. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Kristjana Stella Blöndal, Þráinn Óskarsson og nokkrir nemendur í Tækniskólanum. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.  Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þér gæti líka líkað...