Betrun 4. þáttur – Lög og réttur á tímum upplýsingarinnar
Um miðja 18. öldina fjölgaði dómum á Íslandi og því fjölgaði föngum í haldi sýslumanna og af þessu hlaust mikill kostnaður. Sýslumennirnir sendu því konungi bænaskrá og töldu að besta lausnin á þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sýslumaður bæði fellt og fullnægt dómnum á einum og sama deginum. Davíð Þór Björgvinsson, Hrannar Hólm, Hreinn Hákonarson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Dagskrárgerð annaðist Guðrún Hálfdánardóttir og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fleiri þættir af Kerfið
- Betrun 8. þáttur - Konur í fangelsum17. nóvember 2026
- Betrun 7. þáttur - Áhrif áfalla10. nóvember 2026
- Betrun 6. þáttur - Draumur fangavarðar3. nóvember 2026
- Betrun 5. þáttur - Bílageymsla verður fangageymsla27. október 2026
- Betrun 3. þáttur - Fangaflutningar til Finnmerkur13. október 2026
- Betrun 2. þáttur – Brennimerktir og ærulausir6. október 2026
