Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að kalla hann sérfræðinginn.
Bjössi og Silja fóru yfir keppnisgreinarnar og sigurstranglegasta íþróttafólkið og ýmislegt fleira. Það getur oft verið skemmtilegra að horfa á íþróttafólkið þegar maður þekkir aðeins til þess.
Ísland á þrjá keppendur á mótinu
Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir í sleggjukasti 14. september
Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í spjótkasti 17. september
Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í kúluvarpi - 20. september
Við vonumst til að þetta geri mótið enn meira spennandi fyrir ykkur.
Gleðilegt HM
Fylgdu endilega Klefanum á instagram: @klefinn.is
Fleiri þættir af Klefinn með Silju Úlfars
- Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar31. október 2025
- Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri”24. október 2025
- Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein17. október 2025
- Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein13. október 2025
- Hrefna Hlín - Verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka15. ágúst 2025
- Elísa Viðars - Næring Hlaupara - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka5. ágúst 2025






