Klefinn með Silju Úlfars

Silja Úlfars

Sports

Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar. Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið! https://klefinn.is/ https://www.instagram.com/klefinn.is/

Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar

Júlían J.K. Jóhannsson er þekktur fyrir framúrskarandi árangur í kraftlyftingum. Júlían hefur ekki aðeins sett Íslands- og Evrópumet, heldur hefur hann þrisvar sinnum sett heimsmet í réttstöðulyftu. Þá á Júlían á tvö brons frá Heimsmeistaramótinu í Kraftlyftingum og þá var hann Íþróttamaður ársins 2019.  Júlían ræðir ferilinn sinn, hvernig hann byrjaði í kraftlyftingum, stórmótin og "skákina" bak við tjöldin, að toppa á réttum tíma, næringin, lyfjamál og margt fleira. Þá segir hann okkur betur frá kraftlyftingum og fer yfir hverja grein fyrir sig og hvað þú getur gert til að bæta þig í þeim, þá hefur líkamsbygging áhrif á greinarnar.  Júlían á 415 kg í hnébeygju, 332,5 kg í bekkpressu og 409 kg í réttstöðulyftu.  Júlían er með Kraftlyftingarskólann þar sem hann þjálfar og kennir fólki Kraftlyftingar á öllum aldri. Júlían hitti Silju og þau tóku video þar sem hann fer yfir ákveðin grunn atriði í Kraftlyftingum, þar fór hann yfir Hnébeygju, Bekkpressu og Réttstöðulyftu. Þú getur horft á video hér - LYFTINGARÆFING MEÐ JÚLÍAN.  Hvetjum ykkur til að hlusta og horfa á sterkasta fasteignasala landsins og þú mátt endilega deila.  Fylgdust með á instagram: @klefinn.is @julianjkj @kraftlyftingaskolinn @siljaulfars Hægt að horfa á þáttinn hér.

Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri”

Emil Hallfreðsson fyrrum knattspyrnumaður kom í Klefann og ræddi "passionin" sín, frá knattspyrnu, í umboðsmennsku, ítalska matargerð og fleira.  Emil var atvinnumaður í knattspyrnu, hann spilaði fyrir íslenska landsliðið og hefur verið með annan fótinn á Ítalíu síðustu ár. Þá er hann með Knattspyrnuskóla á Ítalíu þar sem hann fer með ungt knattspyrnufólk út og þau æfa við bestu aðstæður.  Emil ræðir atvinnumennskuna, fer yfir liðin og þróun ferilsins síns, landsliðið og allskonar áskoranir. Þá ræðir hann einnig Olifa, fyrirtæki sem hann og eiginkona hans Ása Regins reka með mikilli ástríðu.  Hvetjum ykkur til að hlusta og deila.  Fylgdust með á instagram: @klefinn.is @emil_hallfredsson @siljaulfars

Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein

Fanney Þóra var nýbökuð móðir á bleiku skýi með þriggja mánaða gamalt barn þegar hún greinist með Choriocarcinoma krabbamein og þarf strax að hefja meðferð. Fanney segir frá greiningunni, að vera nýbökuð móðir með krabbamein og hvað stuðningur fjölskyldunnar í baráttunni skiptir miklu máli. Hún ræðir endurhæfinguna og ljósið og að byggja sig upp aftur þegar þú hefur týnt þér. Fanney hefur alltaf verið í handbolta og talar um hvaða hlutverk handboltinn og Kaplakriki spilaði í öllu þessu ferli.  Fanney segir einlægt frá þessari lífsreynslu sinni og við hvetjum þig til að hlusta og deila, við þurfum öll á góðum sigursögum að halda.  Þú getur hlustað á hana, en þá er einnig hægt að horfa á þáttinn á YouTube og á Spotify, athugið að í video má einnig sjá myndir og textaskilaboð frá ferlinu.  Hvetjum ykkur til að styrkja Krabbameinsfélagið með að kaupa Bleiku Slaufuna. Takk fyrir að hlusta  Fylgdu okkur á instagram: @klefinn.is @fanneythora @siljaulfars

Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein

Mist Edvardsdóttir var landsliðskona í knattspyrnu þegar hún greindist með Hodgkins eitlakrabbamein aðeins 23 ára gömul.  Mist fer yfir ferilinn sinn, en á hátindi ferilsins þegar hún var að ná markmiðunum sínum kom krabbameins greiningin. Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig fótboltinn hjálpaði henni í þessari baráttu, Mist missti aðeins af þrem leikjum á tímabilinu í miðri krabbameinsmeðferð.  Mist segir hreinskilnislega frá þessari lífsreynslu sinni og það er ekki hægt annað en að fyllast aðdáun að hlusta á frásögn hennar.  En myndi hún vilja breyta einhverju?  Það er hægt að hlusta og horfa á þáttinn, á YouTube má sjá myndir og textaskilaboð frá ferlinu.  Hvetjum ykkur til að styrkja Krabbameinsfélagið með að kaupa Bleiku Slaufuna. Takk fyrir að hlusta, þú mátt endilega deila, hver veit hver þarf að fá sigursögu einn daginn.  Fylgdu okkur á instagram: @klefinn.is @mistedvards @siljaulfars

Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum

Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að kalla hann sérfræðinginn.  Bjössi og Silja fóru yfir keppnisgreinarnar og sigurstranglegasta íþróttafólkið og ýmislegt fleira. Það getur oft verið skemmtilegra að horfa á íþróttafólkið þegar maður þekkir aðeins til þess. Ísland á þrjá keppendur á mótinu  Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir í sleggjukasti 14. september Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í spjótkasti 17. september Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í kúluvarpi - 20. september Við vonumst til að þetta geri mótið enn meira spennandi fyrir ykkur.  Gleðilegt HM  Fylgdu endilega Klefanum á instagram: @klefinn.is

Hrefna Hlín - Verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka

Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka kom í Klefann og hleypti okkur aðeins bak við tjöldin á Reykjavíkurmaraþoninu.  Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að halda svona stóran hlaupaviðburð fyrir mörg þúsund manns. Hrefna segir okkur frá því hvernig dagarnir fyrir hlaup eru, hvernig þau halda utan um verkefni 600 sjálfboðaliða, Fit & Run, brautarmælingar, af hverju þau hættu að nota byssuna í startinu og fleira.  Þá eru reglulegar breytingar á Reykjavíkurmaraþoninu og verða áfram, t.d. verður endamarkið á nýjum stað 2026. Í ár var hægt að kaupa keppnismiða eða almennan miða í hlaupið, en hóparnir starta ekki á sama tíma. Nú er uppselt í 21 km og líklegt þykir að fleiri vegalengdir seljist upp. Þú getur skráð þig í hlaupið hér.  Góðgerðarfélögin skipa stóran sess í hlaupinu og söfnunin gengur vel og verður gaman að fylgjast með síðustu dögunum fyrir hlaup, þú getur heitið á hlaupara á hlaupastyrkur.is.  Þegar þú mætir í miðbæinn þann 23. ágúst þá hvet ég þig til að horfa í kringum þig og skoða umgjörðina, hvetja hlauparana og þakka sjálfboðaliðunum fyrir sitt starf. Þátturinn er í boði Íslandsbanka og Íþróttabandalags Reykjavíkur. @reykjavikmarathon @klefinn.is

Elísa Viðars - Næring Hlaupara - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Elísa Viðarsdóttir næringarfræðingur kom í Klefann til að ræða næringu hlaupara þar sem nú nálgast Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, sem fer fram 23. ágúst. Elísa deilir dýrmætum ráðum um hvernig hlauparar geta bætt frammistöðu sína með réttri næringu og undirbúningi. Þá er farið yfir mikilvægi næringar fyrir hlaupara, hvernig á að undirbúa sig fyrir hlaup, orkuinntöku, kolvetnahleðslu og hvernig á að nýta gel og drykki á hlaupadögum, ásamt því að ræða næringu eftir hlaup til að hámarka endurheimt. Elísa leggur áherslu á að hlusta á líkamann og aðlaga næringu að persónulegum þörfum. Hvetjum ykkur til að hlusta og vonandi læra eitthvað nýtt og það gerir hlaupadaginn þinn betri.  Gangi þér vel og ekki gleyma að skrá þig á RMI.is.  Elísa Viðars - @elisavidars - elisavidars91@gmail.com  Ekki gleyma að fylgja Klefanum á instagram @klefinn.is og @siljaulfars. Einnig væri frábært ef þú skelltir í "follow" á Spotify og ratings.  Þátturinn er í boði ÍBR og Íslandsbanka

Erla Björnsdóttir - Betri Svefn

Ein besta recovery aðferð íþróttafólks er svefn, Dr. Erla Björnsdóttir kom í Klefann og fræddi okkur meira um það. Erla er stofnandi og framkvæmdagstór Betri Svefns, hún er sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum og með sérþekkingu á hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi.  Erla ræddi svefnvenjur, áhrif svefns á heilsuna, hvað er gott svefn umhverfi og sagði okkur hvers vegna svefn er mikilvægur fyrir íþróttafólk. Hvað áttu að gera ef þú ert andvaka eða átt erfitt með að vakna á morgnanna.  Þá ræðir hún mataræði, orkudrykki, og fleira sem hefur áhrif á svefninn okkar og hvað við getum gert til að bæta svefninn. Það og fleira um svefn.  Þá eru þau með appið SheSleep sem hjálpar fólki að mappa svefninn sinn, en einnig ræðir Erla aðeins Breytingarskeiðið og svefn.  Mátt endilega ýta á "subscribe" nú og kannski skella í "rate the show".  Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk.  @betrisvefn @she_sleepapp @klefinn.is @siljaulfars

Hreiðar Haraldsson - Hugarþjálfari

Hreiðar hjá Haus Hugarþjálfun aðstoðar íþróttafólk, foreldra og þjálfara að byggja upp hugarfarslega þætti eins og sjálfstraust, einbeitingu og liðsheild.  Hugarþjálfun er eitthvað sem íþróttafólk ætti að skoða. Hreiðar ræðir þægindahringinn og hvernig við stækkum hann, hvernig við eigum að fókusa á það sem við stjórnum, hvernig hugrekki skiptir máli, þá fer hann yfir kvíða, stress og segir frá sinni nálgun í  markmiðasetningu með íþróttafólki. Hvetjum þig til að hlusta. Frekari upplýsingar finnur þú á Haus.is. Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk.  @hugarthjalfun @klefinn.is @siljaulfars

Baldur Þór Ragnarsson – Körfuboltaþjálfari og Íslandsmeistari

Nýkrýndur þjálfari Íslandsmeistari karla í Körfubolta mætti í Klefann og fór víða, Baldur fór yfir þjálfaraferilinn, þjálfun, styrktarþjálfun körfuboltafólks, hugarfarið og hans þjálfara speki. Hvernig hann skapar liðsheildina, teymið í kringum liðið, traust milli þjálfara og leikmanna, hlutverk þeirra, foreldravandamál og margt fleira.  Þá fór hann með okkur yfir úrslitarimmuna og hvernig hann skoðaði leikina og lagði áherslur á. Hann sagði okkur hvernig hann nýtti umfjöllunina til að búa til sviðsmynd fyrir leikmenn þar sem þeir voru "underdogs" í þessu Playoffs. Leikmenn segja hann góðan að sjá veikleika og að hann tækli það strax innan liðsins, "ef það eru vandræði, þá leysir hann það strax." Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk.  @baldurragn @stjarnankarfa @klefinn.is @siljaulfars

Þér gæti líka líkað...