29. Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans
Gestur okkar í þessum fyrsta þætti vetrarins er Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans. Valeria er reynslumikill stjórnandi í upplýsingatæknigeiranum með víðtæka starfsreynslu úr mismunandi atvinnugreinum. Áður en hún tók við núverandi starfi vann hún hjá fyrirtækjum eins og QuizUp, Nova, Icelandair og Advania. Hún er með BS gráðu í verkfræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík ásamt diploma í verkefnastjórnun. Valeria situr auk þess í stjórn SVEF og sinnir kennslu í HR.
Í þættinum ræða Hildur og Valeria meðal annars:
Æskuárin og flutninginn frá Sovétríkjunum til Seltjarnarness
Menntaskólaárin og lífsbaráttuna sem tók yfirhöndina
Frumgreinadeild í HR (nú Háskólagrunnur), þar sem hún fann áhugann sinn og lauk verkfræðinámi
Skemmtilega reynslu hjá Nova á fyrstu árum fyrirtækisins
Ævintýralegan vöxt QuizUp og lærdóminn sem hún og aðrir fengu
Þátttökuna í uppbyggingu Digital Labs hjá Icelandair
Árangursríkar breytingar hjá Advania og hvernig þær þróuðust
Hvernig markþjálfunarnámið hefur nýst henni bæði sem stjórnanda og í eigin lífi
Kennsluna í HR þar sem hún tengir saman tæknigeirann og viðskiptafræði
Hversu nærandi það er að fara í göngutúra með hundinn í náttúrunni
Í þættinum minnist Valeria á tvær bækur:
The Wisedom of the Bullfrog: Leadership Made Simple (But Not Easy) eftir Admiral William H. McRaven
You Do You: How to Be Who You Are to Get What You Want eftir Sarah Knight
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
---------------------------------------------------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar: Advania og Sýn 🙌
Fleiri þættir af Konur í tækni
- 31. Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra5. desember 2024
- 30. Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi ráðgjafi7. nóvember 2024
- Hvað er framundan hjá Vertonet?23. júní 2024
- 28. Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant31. maí 2024
- 27. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, frumkvöðull og framkvæmdastjóri29. apríl 2024
- 26. Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet26. mars 2024





