Hvað er framundan hjá Vertonet?
Elísabet Ósk Stefánsdóttir er nýr formaður stjórnar Vertonet sem kosin var á aðalfundi félagsins sem haldinn var í maí. Í þættinum segir hún okkur bæði frá nýrri stjórn og sjálfri sér, ásamt því að við lítum um öxl yfir þá viðburði sem félagið hefur staðið fyrir í vetur. Við ræðum að auki spennuna fyrir haustinu og viðburða sem nýja stjórnin er byrjuð að huga að.
Um leið og við þökkum ykkur fyrir samfylgdina í vetur kæru hlustendur tökum við okkur nú í sumarfrí en snúum aftur með þáttinn í haust ❤
Styrktaraðilar Konur í tækni eru Sýn, Geko og Advania og þökkum við þeim innilega fyrir stuðninginn 🙌
Fleiri þættir af Konur í tækni
- 31. Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra5. desember 2024
- 30. Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi ráðgjafi7. nóvember 2024
- 29. Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans13. október 2024
- 28. Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant31. maí 2024
- 27. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, frumkvöðull og framkvæmdastjóri29. apríl 2024
- 26. Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet26. mars 2024






