S227: Karate, húfueftirlit ríkisins og gremjupólitíkusar á jaðrinum
Krati vikunnar er þéttpakkaður af oddvitum og gæðaefni. Pétur H. Marteinsson, leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg, er gestastjórnandi í þetta sinn og fer yfir það hvernig takturinn er í framboðinu nú þegar einn og hálfur mánuður er til kosninga.
Pétur ræðir meðal annars um Breiðholtið, mikilvægi íslenskukennslu, hvað sundlaugar og íþróttastarf sem miðja hverfa gefur Íslandi mikla sérstöðu í heiminum þegar kemur að lífsgæðum og allt sem hann er búinn að læra um karate. Svo er rætt um fjármálaáætlun, efnahagslega helgarpabbann Sjálfstæðisflokk sem er að reyna að gera allt til að láta engan taka sig alvarlega og öfugar dyggðarskreytingartilraunir Miðflokksins sem eru orðnar að aðhlátursefni og fórnarlambavæðingu gremjupólitíkusa á jaðrinum, svo fátt eitt sé nefnt.
Í síðari hluta þáttarins mætir Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Álftanesgoðsögn, í viðtal við Arnar Þór Ingólfsson og segir honum frá því hvað hann ætli að gera til að kratavæða Garðabæ.
Fleiri þættir af Kratinn
- S303: Making Reykjavík boring again og kálfarnir á Ulf Kristersson2. október 2026
- S302: Lygar, afbakanir og möguleg endalok Pírata?25. september 2026
- S301: Hanskarnir af19. september 2026
- S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi12. júní 2026
- S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borgin4. júní 2026
- S234: Fjölkæri í Hafnarfirði, tryllingur yfir borginni og já við ESB!28. maí 2026
