Kratinn

Samfylkingin

News & Politics

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.

S303: Making Reykjavík boring again og kálfarnir á Ulf Kristersson

Þessa vikuna fengu Arnar og Valur góða gesti í hús, tvo ung-krata, þá Arnar Inga Ingason, tónlistarmann og Jóhannes Óla Sveinsson, forseta Ungs jafnaðarfólks. Til umræðu voru tímamótaræða Andy Burnham, yfirlýsing formanns Sjálfstæðisflokks um að það styttist mögulega í kosningar, staðan í stjórnarmyndun hjá sænsku Sossunum og því tengt, kálfarnir á Ulf Kristersson, úttekt Vinnueftirlitsins á stólum borgarfulltrúa og tilraunir nýs meirihluta í Reykjavíkurborg til þess að gera borgina leiðinlegri með því að vísa listamönnum á dyr. Löngu-tímabært framlag Kratans til manosphere-bylgjunnar.

S302: Lygar, afbakanir og möguleg endalok Pírata?

Tíu milljarðar fóru til bílaleiganna, en lítill árangur hefur náðst hjá þeim í að fækka bílum sem ganga fyrir jarðefniseldsneyti. Ásta veltir fyrir sér hvort endalok Pírata séu í sjónmáli, en í nýjustu könnun Maskínu mælist flokkurinn með 3,5% fylgi. Bókun 35, Miðflokkurinn og fjármál sveitarfélaga koma líka við sögu, ásamt ýmsu fleiru.

S301: Hanskarnir af

Kratinn mætir úr lærdómsríku sumarfríi með hanskana af. Þjóðaratkvæðagreiðslan var gerð upp og því velt upp af hverju stjórnarandstaðan hættir ekki að tala um hana eins og hún lofaði. Skattastefna Sjálfstæðisflokksins var tekin fyrir og af hverju í ósköpunum Vinstri græn samþykktu 330 milljarða skattalækkanir á meðan þau skiluðu 866 milljarða halla á ríkissjóði. Fyrsta umræða fjárlaga var dregin saman og teymið ræddi hræðslu sína við amerísku úthverfahugsjónina sem er að baki útvíkkuðum borgarmörkum.

S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi

Þáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir farinn veg á þessu þingári og ýmis afrek sem unnist hafa á vettvangi þingsins. Þáttastjórnendur fóru yfir bestu og verstu frammistöðurnar. Þá sagði Ásta Guðrún sögu af krullhærðum Pírata í gjaldeyrishöftum ásamt því að fara yfir býsna góða tölfræði úr þingstörfunum. Arnar Þór fór yfir þekkta tækni til að flýta fyrir þinglokum, sem virðist hafa virkað vel hjá honum. Viðbrögð hægri snjókornanna við efnismiklum og upplýsandi Silfursþætti voru krufin til mergjar. Þórður Snær náði að ranta um hagstjórn og Þórhallur Valur lýsti andúð sinni á umræðu um Evrópusambandið.

S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borgin

Þátturinn hófst á óvæntri gestakomu, Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, kíkti í stutt innlit og fór yfir innviðafélag sem er á dagskrá Alþingis í dag. Rætt var um samgönguáætlun, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur af Alþingi og fyrstu verk nýrrar borgarstjórnar ásamt fleiru.

S234: Fjölkæri í Hafnarfirði, tryllingur yfir borginni og já við ESB!

Farið var yfir meirihlutamyndanir í Reykjavík og Hafnarfirði, rætt var um brakandi ferskar og lækkandi verðbólgutölur og svo um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

S233: Uppgjör eftir kosningar

Farið var yfir sveitarstjórnarkosningarnar, rætt um kosningabaráttuna og niðurstöður í Reykjavík og á landsvísu.

S232: Það er eins og allir flokkar séu jafnaðarflokkar í sveitarstjórnarkosningum

Í hlaðvarpsþætti vikunnar mættu þær Hildur Rós Guðbjargardóttir frambjóðandi okkar í Hafnarfirði og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, frambjóðandi okkar í Garðabæ, í Kratakompuna til Arnars og Vals. Þær fóru yfir stöðuna hjá framboðunum og hvað hefur verið á oddinum síðustu vikur. Rætt var um sund og meira sund fyrir unga sem aldna og af hverju í ósköpunum þær þurfi að fara í kvöldsund í Reykjavík. Grunnskólamálin voru líka tekin rækilega fyrir og mikilvægi úrbóta í þeim málaflokki. Þær stöllur voru spurðar um afstöðu sína til sameiningar Hafnarfjarðar og Garðabæjar sem og samstarfsverkefni ýmis á milli sveitarfélaganna. Hildur Rós lét gamminn geisa um næturstrætó, sem Hafnfirðingar vildu en Garðbæingar ekki, og mikilvægi þess að samgöngumál séu unnin í góðu samstarfi. Einnig ræddum við af hverju í ósköpunum allir flokkar láti eins og jafnaðarflokkar í kosningum en standi svo ekki við stóru orðin (lesist Framsóknarflokkurinn sérstaklega). Þá fór Vilborg Anna yfir stöðuna á Álftanesi og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur vanrækt það mikilvæga svæði. Að lokum vaknaði spurningin: Hvað kemst maður langt á einu skópari? Kosningabarátta er frábært tækifæri til að láta reyna á það.

S231: Bensínbann til 1. maí, staðan í Árborg og auglýst eftir framtíðarsýn fyrir Reykjavík

Í þætti vikunnar fóru strákarnir yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur gildi 1. maí og afhverju það er mikilvægt að geta ráðist í verðlagseftirlit á þessum markaði. Arnar sagði frá ferð á eilítið einhliða ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem skortur á jákvæðri framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið var ríkjandi og einn þeirra sem sat í pallborði virtist harma það að Fossvogsdalurinn hefði ekki verið malbikaður á sínum tíma. Í seinni hluta þáttarins er svo rætt við Sigurjón Vídalín Guðmundsson oddvita okkar fólks í Árborg um stöðu mála í sveitarfélaginu.

S230: Fyrstu skrefin tekin í sameiningu Seltjarnar- og Akraness og staðan í Ölfusi

Myndi eitthvað stórfyrirtæki ráða bæjarstjórann á Seltjarnarnesi sem framkvæmdastjóra með hliðsjón af rekstri og þjónustu bæjarins síðustu ár? Þessari spurningu og ýmsum öðrum er velt upp í spjalli við þau Auði Höllu Rögnvaldsdóttur frambjóðanda S-listans á Seltjarnarnesi og Sigurð Vopna Vatnsdal oddvita Samfylkingarinnar í Akraneskaupstað. Arnar Þór og Þórhallur Valur tóku þau tali. Gunnsteinn R. Ómarsson oddviti Samfylkingar og félaga í Ölfusi er svo gestur í síðari hluta þáttarins og fer yfir stöðu mála fyrir kosningar í sveitarfélaginu.

Þér gæti líka líkað...