Læknavarpið

Læknablaðið

Heilsa

Læknavarpið er hlaðvarp Læknablaðsins þar sem rætt er við lækna á faglegum og persónulegum nótum. Nýr þáttur með hverju nýju Læknablaði. Þáttastjórnandi: Kristborg Bóel Steindórsdóttir Stef: Doctor Victor

#10/2026 „Akureyri á sérstakan stað í hjarta mér“

Girish Hirlekar hafði nýlokið sérnámi í svæfingalækningum í heimalandi sínu Indlandi, þegar hann réð sig til starfa við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri árið 1976. Hann ætlaði sér aðeins að vera í hálft ár en svo fór að hann settist að, stofnaði fjölskyldu og lauk í haust fimmtíu ára starfsævi á Íslandi. Girish er gestur Læknavarpsins.

#7/2026 Verðum að líta út fyrir rammann og hugsa hlutina upp á nýtt.

Lækning í Lágmúla 5 er sérfræðilæknastöð þar sem tólf sérgreinar eru undir sama þaki. Skurðstofan ehf. er í sama húsnæði og starfa einingarnar náið saman. Þeir Gísli Ingvarsson, húð- og kynsjúkdómalæknir og stjórnarformaður Lækningar og dr. Stefán E. Matthíasson, almennur- og æðaskurðlæknir framkvæmdastjóri Skurðstofunnar, mættu í Læknavarpið þar sem Kristborg Bóel Steindórsdóttir ræddi við þá um starfsemina og margt fleira.

#6/2026. „Það eina sem skiptir máli í þessu lífi eru tengslin“

Geðlæknirinn og ljóðskáldið Ferdinand Jónsson er fluttur heim eftir rúmlega 28 ára dvöl í Bretlandi og starfar í dag á geðdeild Landspítalans við Hringbraut. Ferdinand var gestur Læknavarpsins þar sem hann talaði um starf sitt í Lundúnum, eigin veikindi, ljóðlistina og hvernig var að snúa heim á ný.

#5 2026 Fullkomið tækifæri til að snúa aftur heim

Jónas A. Aðalsteinsson tók síðastliðið haust við stöðu prófessors við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknis húð- og kynsjúkdóma á Landspítala. Jónas sérhæfði sig í húðlækningum við University of Connecticut School of Medicine og lauk jafnframt sérnámi í húðmeinafræði frá Mount Sinai í New York. Kristborg Bóel Steindórsdóttir ræddi við Jónas í Læknavarpinu þar sem hann sagði frá námsárunum í Bandaríkjunum, rannsóknum sínum og fyrstu skrefunum í nýju starfi.

#4 2026/Adam Erik Bauer: „Markmiðið er að rannsóknin skilji eitthvað nothæft eftir sig“

Adam Erik Bauer réttarefnafræðingur hefur starfað á rannsóknarstofu lyfja- og eiturefnafræði Háskóla Íslands frá árinu 2018. Þar vinnur hann nú að doktorsverkefni sínu en markmið þess er að skoða leiðir til þess að meta nýjungar og breytingar á íslenskum fíkniefnamarkaði og nota þær upplýsingar í þágu lýðheilsu.

#3/2026 Frá Kenýa í læknisfræði – Alma Glóð Kristbergsdóttir, sérnámsgrunnlæknir á Landspítala.

Alma Glóð Kristbergsdóttir er sérnámsgrunnlæknir á Landspítala. Leið hennar að læknisfræðinni er í senn óhefðbundin og heillandi. Það var undir lok menntaskóla sem hún áttaði sig á því hvert hugurinn stefndi, hana langaði til þess að hjálpa fólki. Það var svo tveggja mánaða dvöl í Kenýa sem veitti henni fullvissu um að stefnan væri rétt. Alma Glóð var gestur Læknavarpsins.

#2/2026 Per mentis innblásin af „sænska módelinu“ – Kristófer Sigurðsson

Per mentis er geðlækningastofa sem býður þjónustu í almennum geðlækningum, þar á meðal greiningu og meðhöndlun taugaþroskaraskana á borð við ADHD. Þjónustan er veitt í teymisvinnu geðlækna, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga. Kristófer Sigurðsson, stofnandi Per mentis, er mikill talsmaður teymisvinnu innan heilbrigðiskerfisins. Hann var gestur Læknavarpins og hér að neðan má sjá stutt brot úr því viðtali.

#1/2026 Klíníkin Ármúla

Klíníkin Ármúla er læknamiðstöð þar sem framkvæmdar eru fjölbreyttar aðgerðir, bæði þar sem sjúklingar útskrifast samdægurs og einnig þær sem krefjast innlagnar. Þeir Hjálmar Þorsteinsson, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum, Kristján Skúli Ásgeirsson, sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum, og Hrólfur Einarsson, sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum, komu í Læknavarpið og sögðu frá ferlinu við stofnunina, starfseminni og baráttunni við kerfið.

#8/2025 Bjarni Geir Viðarsson og Guðrún Höskuldsdóttir.

Bjarni Geir og Guðrún ræða stöðu mála í sérhæfðri offitumeðferð á Reykjalundi.

#7/2025. Steinarr, Þórður og Þórarinn eru íslenskir skurðlæknar sem reka Klíník í Svíþjóð.

Steinarr Björnsson, Þórður Ægir Bjarnason og Þórarinn Kristmundsson segja frá vegferð sinni í Læknavarpinu.

Þér gæti líka líkað...