GEÐVARPIÐ - Margrét Eiríksdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun
„Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum áttunda þætti fá gestaspyrlar þær Sandra Sif Gunnarsdóttir, starfandi deildarstjóri á Laugarás og Rannveig Þöll Þórsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun til sín Margréti Eiríksdóttur sérfræðing í geðhjúkrun. Margrét hefur yfir fjörutíu ára starfsreynslu við geðhjúkrun.
Margrét hefur upplifað miklar breytingar á þjónustu og meðferð geðsjúkra á löngum starfsferli. Þegar litið er til hjúkrunar fólks sem tekst á við alvarlega geðsjúkdóma ber þar hæst aukna þekkingu á mikilvægi þess að uppfylla þjónustuþarfir og veita þjónustu og stuðning samkvæmt þörfum í nærumhverfi sjúklinga og fjölskyldna þeirra.
Rætt er við Margréti um bakgrunn hennar, áherslur, ástríðu og reynslu í geðhjúkrun.
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



