LEGVARPIÐ // SIGURVEIG ÓSK PÁLSDÓTTIR SEGIR FRÁ VATNSFÆÐINGUM
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Gestur þessa þáttar er ljósmóðirin Sigurveig Ósk Pálsdóttir, betur þekkt sem Ósk. Ræðir hún við Legvörpur um vatnsfæðingar. Ósk tekur hlustendur með inn í draumkennt andrúmsloft vatnsfæðingarinnar þar sem ljósmæðralistin fær að leika lausum hala. Viltu vita hver ávinningur vatnsbaða er á ólíkum stigum fæðinga, hvernig þetta allt saman virkar og hvers vegna í ósköpunum sumar konur kjósa að fæða börnin sín ofan í baðkörum? Þá ertu á réttum stað!
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.
Krosssaumuð píka: Birta Rún Sævarsdóttir.
SIMPLECAST
https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-06
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



