LEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Anna Rut Sverrisdóttir spjallar við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fimmta þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala er komið að mjög áhugaverðu spjalli við hina léttu, ljúfu og kátu ljósmóður Önnu Rut Sverrisdóttur. Hún deilir reynslu sinni af ljósmæðrastörfum í Bethlehem og segir ótrúlegar sögur af aðbúnaði palestínskra ljósmæðra og fæðandi kvenna. Anna Rut dregur upp magnaða mynd af ljósmæðralífinu, allt frá ferð sinni til vinnu frá Jerúsalem í gegnum varðstöðvar Ísraelshers, að frumlegum aðferðum við að laga rótsterkt arabískt kaffið sem var ómissandi á kaffistofu ljósmæðranna. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er einn af nokkrum, sem Legvarpið vinnur í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti þess má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.
Krosssaumuð píka: Birta Rún Sævarsdóttir
SIMPLECAST
https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-05
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



