UMBÓTAVARPIÐ // Auður Ketilsdóttir, Berglind Ósk Birgisdóttir og Brynja Ingadóttir
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí undir yfirskriftinni "Byggjum brýr". Markmiðið er að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Af þessu tilefni ýttum við úr vör sérstakri þáttasyrpu undir yfirskriftinni "Umbótavarpið". Þessi fyrsti þáttur Umbótavarpsins fjallar um þrjú umbótaverkefni. Auður Ketilsdóttir greinir frá átaki í fræðslu til sjúklinga og starfsfólks, Berglind Ósk Birgisdóttir fjallar um endurhæfingu á meðferðardeildum og Brynja Ingadóttir segir frá Miðstöð sjúklingafræðslu.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.
SIMPLECAST
https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/umbotavarp-01
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



