LEGVARPIÐ // Steinunn K. Zophoníasdóttir ræðir breytingaskeiðið við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk

· Heilsa

"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum öðrum þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um breytingaskeiðið með samtali við Steinunni Kristbjörgu Zophoníasdóttur ljósmóður, sem skrifaði meistaraprófsritgerð um þetta merkilega tímabil í lífi kvenna.
Um fjórðungur kvenna á breytingaskeiði upplifir veruleg einkenni sem hafa áhrif á daglegt líf og lífsgæði, svo sem hitakóf, svefntruflanir og andlega vanlíðan. Birtingarmynd einkenna er afar einstaklingsbundin og háð margþættu og flóknu samspili líffræðilegra, sálrænna og félagslegra þátta auk þess sem lífsreynsla, lífsmáti og lífsviðhorf móta upplifun kvenna.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.
Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti þess má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.
Krosssaumuð píka: Birta Rún Sævarsdóttir
 
SIMPLECAST
https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-02
 
SPOTIFY
 
ELDRI LEGVARPSÞÆTTIR:
https://soundcloud.com/legvarpid

Landspítali hlaðvarp

Úr hlaðvarpinu

Landspítali hlaðvarp

Stefán Hrafn Hagalín

Allir þættir

Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp