Dagáll læknanemans: Berglind Bergmann og Gerður Gröndal - Tilfellamiðuð gigt
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál.
Í þessum þætti koma í heimsókn þær Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Gerður Gröndal sérfræðingur í gigtarlækningum og leysa tilfelli. Í tilfellinu er komið víða við, meðal annars í sögutöku í gigtarsjúkdómum, kerfakönnun sjálfsónæmissjúkdóma og mynstri liðbólga. Einnig er góð umfjöllun um gigtarprufur, hvað á að panta og hvað segja þær okkur? Hlustaðu til enda til fá greininguna!
Stjórnendur Dagáls læknanemans eru læknanemarnir Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



