Dagáll læknanemanns: Sæmundur Rögnvaldsson - Sýklalyf og fallhlífastökk
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál.
Í þessum þætti af Dagál Læknanemans eru rannsóknir í fyrirrúmi. Sæmundur Rögnvaldsson, doktorsnemi og velunnari hlaðvarpsins, ræðir tvær greinar annars vegar um noktun sýklalyfja við meðhöndlun þvagfærasýkinga og hins vegar fyrstu framsýnu slembi slembivalsrannsókn sinnar tegundar á virkni fallhlífa í fallhlífastökkum. Farið er yfir hvernig nálgast skal lesningu greina, hvað ber að varast og hvenær spurningar um gæði rannsóknarinnar ættu að vakna! Allt þetta og margt fleira í þætti vikunnar!
Stjórnendur Dagáls læknanemans eru læknanemarnir Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
SPOTIFY
SIMPLECAST
(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



