Dagáll læknanemans: Guðrún Dóra Bjarnadóttir og Anna Kristín Gunnarsdóttir - Óráð

· Heilsa

"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál.
Guðrún Dóra Bjarnadóttir sérfræðingur í geðlækningum og Anna Kristín Gunnarsdóttir sérnámslæknir í geðlækningum ræða óráð í þessum þætti. Af hverju lendir fólk í óráði og hvernig á að bregðast við? Farið er gegnum helstu birtingarmyndir óráðs og einkenni. Hverju leitum við eftir við sögu og skoðun og hvað er fólgið í góðri geðskoðun? Einnig kynnum við til leiks ýmsa matslista sem geta aðstoðað við mat og greiningu. Þá ræðum við ítarlega orsakir óráðs og viðeigandi rannsóknir. Loks er farið yfir gildi fyrirbyggjandi meðferðar og mikilvægi þess að bregðast hratt og rétt við þegar einstaklingur fer í óráð. Til frekari glöggvunar má nálgast góðar upplýsingar á vef Landspítala.
Stjórnendur Dagáls læknanemans eru læknanemarnir Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
SPOTIFY
SIMPLECAST
(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)

Landspítali hlaðvarp

Úr hlaðvarpinu

Landspítali hlaðvarp

Stefán Hrafn Hagalín

Allir þættir

Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp