Dagáll læknanemans: Helga Margrét Skúladóttir - Gáttatif
"Dagáll læknanemans" er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál og verkefni.
Í þætti vikunnar ræðir Helga Margrét Skúladóttir hjartalæknir gáttatif frá ýmsum hliðum. Samtalið hefst á almennri umræðu um einkenni gáttatifs og hverju er leitað eftir við skoðun sjúklinga. Þá eru áhættuþættir gáttatifs ræddir og hvernig þeir stuðla að meinmyndun gáttatifs. Farið yfir hvernig gáttatif er flokkað. Því næst er greining og meðferð sjúkdómsins rætt. Hvað er átt við með “rate vs. rhythm control” og hverju á að beita? Hvernig best er að hægja á sjúklingum í hröðu gáttatifi og hverjum á að rafvenda. Þá er farið yfir langtímahorfur og fylgivkilla gáttatifs og hvernig þeir eru meðhöndlaðir.
Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
SPOTIFY
SIMPLECAST
https://landspitalihladvarp.simplecast.fm/dagall-06
(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



