Ragnar Freyr Ingvarsson yfirlæknir og Sólveig Hólmfríður Sverrisdóttir deildarstjóri: Covid-19-göngudeild Landspítala - Uppsetning og verkefni

· Heilsa

Sérstök Covid-19-göngudeild Landspítala og þjónustan þar, ásamt öflugri fjarheilbrigðisþjónustu, gegndi lykilhlutverki í vel heppnuðum undirbúningi og viðbragði hér á landi gagnvart Covid-19-faraldrinum. Deildin er raunar talin einstæð á heimsvísu og þótti halda utan um krefjandi sjúklingahóp með afar farsælum hætti, en hún hefur nú lokið störfum. Yfirlæknir göngudeildarinnar var Ragnar Freyr Ingvarsson og deildarstjóri Sólveig Hólmfríði Sverrisdóttir. Hér er rætt við Ragnar Frey og Sólveigu, sem segja frá verkefnum sínum á göngudeildinni, ásamt því að gefa okkur innsýn í bakgrunn sinn. Gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir.
Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Landspítali dælir þessar vikurnar út djúpum og löngum hlaðvörpum sem tengjast Covid-19. Verkefnið snýst um að tala við lykilfólk spítalans í faraldrinum á mismunandi sviðum og skrásetja frásagnir þess fyrir spjöld sögunnar í ítarlegu máli til gagns og lærdóms þegar fram í sækir.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.

Landspítali hlaðvarp

Úr hlaðvarpinu

Landspítali hlaðvarp

Stefán Hrafn Hagalín

Allir þættir

Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp