Ásdís Elfarsdóttir Jelle, deildarstjóri og hjúkrunarfræðingur: Starfsemi sýkingavarnadeildar Landspítala á tímum COVID-19
Hjúkrunarfræðingurinn Ásdís Elfarsdóttir Jelle er deildarstjóri sýkingavarnadeildar Landspítala, sem hefur gegnt algjöru lykilhlutverki í undirbúningi og starfsemi spítalans í COVID-19-faraldrinum. Ádís er gestur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni, en gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Hún hefur unnið innan heilbrigðiskerfisins frá árinu 1980 og sinnt þar fjölbreyttum störfum. Sýkingavarnadeild tilheyrir sviði framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga.
Ásdís segir hér frá starfsemi deildarinnar síðustu mánuði ásamt því að gefa innsýn í verkefni deildarinnar hversdags. Starfssvið sýkingarvarnadeildar Landspítala er óvenju vítt, en megináherslan er á varnir gegn sýkingum á sjúkrahúsinu og eftirlit og skráningu sýkinga og ákveðinna örvera. Þá er kennsla nema og fræðsla til starfsfólks stór hluti starfsins auk samstarfs við sóttvarnalækni hjá embætti landlæknis. Ásdís hefur verið deildarstjóri sýkingavarnadeildar frá árinu 2008.
Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Landspítali dælir þessar vikurnar út djúpum og löngum hlaðvörpum sem tengjast COVID-19. Verkefnið snýst um að tala við lykilfólk spítalans í faraldrinum á mismunandi sviðum og skrásetja frásagnir þess fyrir spjöld sögunnar í ítarlegu máli til gagns og lærdóms þegar fram í sækir.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



