Freyja Valsdóttir lífeindafræðingur og Máney Sveinsdóttir náttúrufræðingur: Starfsemi sýkla- og veirufræðideildar Landspítala á tímum COVID-19
Freyja Valsdóttir lífeindafræðingur og Máney Sveinsdóttir náttúrufræðingur eru gestir Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni, en gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Freyja og Máney starfa báðar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Mikið hefur mætt á veirufræðihluta deildarinnar í COVID-19 faraldrinum og vinnudagarnir lengst með margföldu álagi við greiningar á sýnum vegna COVID-19. Starfsfólki var fjölgað í faraldrinum og mönnun við greiningarvinnu styrkt, ásamt því sem tækjabúnaður var bættur.
Freyja og Máney segja okkur hér frá vinnunni á deildinni í faraldrinum, ásamt því að greina frá bakgrunni sínum og starfsferli. Sýkla- og veirufræðideild Landspítala er rannsóknastofa og tilvísunarrannsóknastofa fyrir Ísland á sviði bakteríufræði, veirufræði, sveppafræði og sníkjudýrafræði. Deildin vinnur með sóttvarnarlækni og öðrum heilbrigðisyfirvöldum að bættri lýðheilsu með rannsóknum og skráningu á smitsjúkdómum, orsökum þeirra og útbreiðslu. Þau gögn nýtast jafnframt til fyrirbyggjandi aðgerða, svo sem sýkingavarna og bólusetninga.
Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



