Hanna Kristín Guðjónsdóttir: Hjúkrunarfræðingur og eðalnörd - Alin upp á fjöllum, en er með annan fótinn í Amsterdam í seinni tíð
Hanna Kristín Guðjónsdóttir er fædd í Kópavogi og alin upp í Reykjavík, en þó ekki síður inni á hálendinu þar sem hún eyddi drjúgum hluta frumbernskunnar. Hanna Kristín er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir með meistaragráðu í gagnagreiningu og upplýsingatækni. Hún er verkefnastjóri hjá Landspítala í dag, annars vegar í gæðadeild og hins vegar í heilbrigðis- og upplýsingatæknideild (HUT).
Hún er fjögurra barna móðir og tvöföld amma með annan fótinn í Amsterdam þar sem hún á athvarf ásamt hollenskum eiginmanni sínum, sem er sjúkraþjálfari hér á landi. Hanna Kristín ræðir hérna bakgrunn sinn og lífshlaup, ásamt því að segja frá sínum fjölbreyttu verkefnum á Landspítala undanfarna fjóra áratugi. Þessi litríka, jákvæða og stórskemmtilega kona er eðalnörd af gamla góða skólanum.
Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Hönnu Kristínu. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vefsvæðum og samfélagsmiðlum spítalans, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander9. febrúar 2026
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir6. maí 2025
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu2. apríl 2025
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur1. nóvember 2024
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein11. október 2024
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap.4. október 2024



