Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu

· Heilsa

Verkefnastofa Landspítala vinnur með stjórnendum og starfsmönnum að breytingum í rekstri og styður við lykilverkefni framkvæmdastjórnar og starfsáætlun. Verkefnastofa annast fræðslu um verkefnastjórnun, aðferðafræði lean og breytingastjórnun. Stofan menntar um fjögur hundruð starfsmenn árlega á sviði straumlínustjórnunar. Þá veitir verkefnastofa ráðgjöf og vinnur að því að samræma og þróa verklag, sérstaklega hvað varðar skilvirka verkferla – Lean Healthcare.
Aðferðafræði straumlínustjórnunar er aðferðafræði sem Landspítali valdi til að vinna að breytingum á þjónustu spítalans til að auka öryggi og minnka sóun. Meginverkefni verkefnastofu er að innleiða aðferðafræðina á Landspítala og aðlaga og þróa hana að þörfum spítalans. Landspítalinn hóf lean-vegferðina árið 2011. Straumlínustjórnun snýst um stöðugar umbætur og að skoða og setja þarfir sjúklinga í öndvegi, eyða sóun, bæta flæði og jafna álag. Stöðugar umbætur af þessu tagi kalla á mikla þátttöku starfsfólks, kraftmikla teymisvinnu og að stjórnendur séu sýnilegir og veiti ríka endurgjöf.

Landspítali hlaðvarp

Úr hlaðvarpinu

Landspítali hlaðvarp

Stefán Hrafn Hagalín

Allir þættir

Fleiri þættir af Landspítali hlaðvarp