33. Andrea & Vignir - pitstop í Kenía á leiðinni að Íslandsmeti
Vignir Már hefur æft hlaup síðan um aldarmótin (á þeim tíma voru hlauparar spurðir hvort þeir „kæmust maraþon“). Hann hefur margsinnis farið til Kenía, mekku langhlaupa, í æfingabúðir en fyrr á árinu fór Andrea Kolbeinsdóttir í sína fyrstu ferð sem hluta af undirbúningi fyrir Kaupmannahafnarmaraþonið (það eru 7stk „A“ í þessu orði) þar sem tilraun verður gerð til að slá 26 ára gamalt Íslandsmet Mörthu Ernstsdóttur: 2:35:15.
Umræðuefni:
Hvernig æfir maður fyrir það að hlaupa á hraðasta maraþontíma Íslandssögunnar?
Aðstæður í Kenía og hvað gerir Kenísku hlauparana svona góða? (aðstæður, umhverfi, hvatar, gen, lyf?)
Háfjallaloftið og bætingar
Eliud Kipchoge er einhversstaðar á bilinu 30-50 ára gamall. Frá því að hlaupa tannlaus á brautinni yfir í hraðasta maraþontíma sögunnar (og milljónir dollara inná bankareikning).
Samsæriskenningin um dauða Kelvin Kiptum.
Vignir hefur hlaupið frá aldarmótunum, greining á hlaupasenunni, hvað er að breytast? Hvar liggja vinsældirnar? Er maraþonið að missa virðinguna sem það á skilið? Hvernig hafa æfingar breyst?
Óhugnaleg heimsmet í götuhlaupum.
Kolvetni og ofurskór.
Fleiri þættir af LANGA - hlaðvarp
- 103. TOBBI vill að þú sýnir karakter, egódauði í ultrahlaupum, hvernig talaru við sjálfan þig og 2-0 fyrir UTMB22. september 2026
- 102. Af hverju æfir Klæbo ekki í zone 2? Steindi í Bakgarðinum, Almgren heimsmeistari, Johaug og BLUMMENFELT20. september 2026
- 101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin.4. september 2026
- 100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör2. september 2026
- 99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM21. ágúst 2026
- Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma18. ágúst 2026






