LANGA - hlaðvarp

Snorri Björns

ÍþróttirHeilsa

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

103. TOBBI vill að þú sýnir karakter, egódauði í ultrahlaupum, hvernig talaru við sjálfan þig og 2-0 fyrir UTMB

Tobbi er búinn að tryggja sér miða í UTMB 2027, hlaupið sem að kláraði hann tvö ár í röð, og nú er kominn tími til að ganga í gin ljónsins í þriðja skipti og loka þessum kafla. Við ræðum væntingastjórnun og sjálfstal í löngum ultrahlaupum, hvernig Elísa snerist frá því að hætta í CCC, að vera með hátt gólf eða hátt þak, Ben Dhiman og hans óvanalega nálgun á íþróttina, tveggja höfuðljósaframmistöðu í Julian Alps og markmið Tobba í götumaraþoni undir lok árs.

102. Af hverju æfir Klæbo ekki í zone 2? Steindi í Bakgarðinum, Almgren heimsmeistari, Johaug og BLUMMENFELT

Rígurinn á milli Steinda og Latsa nær dýpra en ég hélt, 360° greining á 5 hringja Bakgarðs-frammistöðu, Tobbi er kominn í UTMB 2027, Klæbo æfir ekki í zone 2 til að passa upp á samsetningu vöðvaþráðanna sinna (vísindahorn Latsa), mikill ávinningur af 20 æfingum í hita, Theresa Johaug eignast barn í janúar og hleypur hraðast allra evrópskra kvenna á heimsmeistaramótinu (1:08 🤯), Blummenfelt tapaði en stal allri athyglinni, Andreas Almgren er bestur í heimi og The Icelandic Hypetrain eru að æfa eins og skepnur!

101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin.

Ben Dhiman æfir sig á skíðum, rústar UTMB og segir að við höfum lifað á steinöld hvað varðar frammistöður í 100 mílna hlaupum - má skjóta svona fast á Kilian og Walmsley þegar þú nærð lang bestu frammistöðu allra tíma? Gulli tók út Chamonix (sem er sprungið) og Egill kemur með fréttir af sviptingum hjá skóframleiðendum Slúður um íslenskt UTMB hlaup, minkur sást í Heiðmörk og allar helstu fréttir sem úthaldsíþróttafólk landsins þarf að fá veður af.

100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör

Elísa Kristinsdóttir gerir upp frumraun sína í CCC, stærsta 100km hlaupi heims, á stálheiðarlegan máta. Hún er hvergi af baki dottin og frumflytur svakalega keppnisdagskrá sem er framundan og hlutina sem hún þarf að laga fyrir tilraun tvö.

99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM

Baldvin gerir upp viðburðarríkt Evrópumeistaramót, þar sem hann setti Íslandsmet í 10.000m, og vegferðina fram að mótinu. Við förum yfir æfingabúðirnar, rauðrófu+koffín kokteilinn fyrir keppni, VLOG fram að Ólympíuleikunum, hvernig hann bregst við æfingum í háfjallalofti, að hafa áhyggjur alla keppnisvikuna, yfirburði Andreas Almgren, taktíkina í keppninni og möguleikann á því að hlaupa nálægt 13 mínútum í 5km hlaupi í næsta mánuði!

Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma

ÍBR virðist ætla að breyta 10km götuhlaupinu í 10km hindrunarhlaup - Reykjavíkurmaraþonið samt alltaf best mælda, best skipulagða og best tímatekna hlaup landsins. Endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Íslandsmet Baldvins, 800m rimman, ALMGREN og viðburðarríkt Evrópumeistaramót gert upp. SLÚÐUR um miðbik þáttar sem mun ekki fara framhjá neinum íþróttaáhugamanni á næstu dögum. Er Arnar Pétursson skemmtilegasti maðurinn í hlaupasenunni? Á hann brautarmetið í Laugaveginum? Elísa og Andrea eru komnar til Chamonix - Andrea lifir í einhverskonar draumi og Elísa var fædd til þess að gera góða hluti í CCC.

97. Jón Diðriksson - Maðurinn sem setti markið hærra

„Hver er þessi Jón Diðriksson?“ Sveitastrákurinn úr Borgarfirði sem setti Íslandsmet í öllum greinum frá 800m og upp í 10km götuhlaup. Jón setti markið svo hátt fyrir þá sem á eftir komu að metin hans stóðu sum hver í meira en 40 ár og eitt þeirra stendur enn þann dag í dag, þó það hafi verið sett fyrir algjöran misskilning! “Það var bara regla… maður var aldrei ánægður. Maður vildi alltaf hlaupa betur - og hraðar”

96. Stundin er runnin upp: Baldvin og Hlynur reima skóna, Arnar hamrar Laugaveginn og sub2 maraþon sjokk

Gunnar Páll er sendur til Birmingham í nafni LANGA hlaðvarps þar sem hann mun fylgjast með Baldvini Þór keppa í 10.000m og Hlyni Andréssyni í maraþoni fyrir Íslands hönd. Evrópumeistaramótið er feykna sterkt í ár en Gunni Palli upplýsir þig um allt sem þú þarft að vita fyrir mótið: Meiðsli og endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Baldvin héraði 5km á 15mín og mældist 1,7mmol í mjólkursýru, Nordås er hættur í þjálfun hjá Gjert Ingebrigtsen, Hlynur virðist leggja allt í sölurnar, Keely Hodgkinson ógnar ósnertanlega metinu, Andreas Almgren (LANGA favorite) mun skrúfa upp í 10.000m fyrir Baldvin, Femke Bol lengir og Gunni Palli mun, þó það sé þyngra en tárum taki, missa af maraþon göngunni. Það var í þokkabót ekki annað hægt en að bera undir Gunnar tímann hans Arnars á Laugaveginum og fá viðbrögð við stórbætingu á heimsmetinu í maraþoni.

Mjólkursýra = óvinurinn eða leynivopnið? Lyfjapróf að næturlagi, Tour De France, HYROX og hitabylgja

Af hverju eru hlauparar að æfa undir mjókursýruþröskuldi til þess að forðast mjólkursýru en ætla núna að borða hana? Eru lactate gel næsta byltingin í úthaldsíþróttum eða bara snilldar markaðssetning? Stærsta þrekraun úthaldsíþróttamannsins, Tour de France, er í fullum gangi - hjólarar eru lyfjaprófaðir að næturlagi með ófyrirséðum afleiðingum, Latsi setti hæstu wöttin sín í pedalana eftir stutta og snarpa HYROX blokk í miðju hvíldartímabili og LANGA hlaðvarp fjallar um hjólreiðakeppnir svo lengi sem hlauparar vinni þær.

94. Tove Alexandersson

Sú albesta, stigahæsta og æfingaglaðasta er mætt í LANGA hlaðvarp. 30 klukkutíma hlaupavikur, sænska leiðin, rjómaþamb á æfingum, hákolvetnainntaka, magn fram yfir gæði - en stundum gæði framyfir magn, UTMB > götumaraþon, sænska leiðin > norska leiðin og af hverju eru rathlauparar svona góðir í utanvegahlaupum?

Þér gæti líka líkað...