28. Hafsteinn Ægir - 25 ára keppnisreynsla: „Djöfull eruði að missa af miklu“
Hafsteinn fór á tvenna Ólympíuleika í siglingum og hóf síðan keppnisferil í hjólreiðum. Reynslan drýpur af honum eftir rúmlega tvo áratugi af keppnisíþróttum á hæsta stigi og það er mikið hægt að læra af 45 ára íþróttamanni sem er að eiga sín bestu ár á ferlinum. Haffi fer yfir hvernig áherslan hans fór af árangri og yfir á leiðina að árangrinum, hvernig keppnisstressið hvarf, tilraunir á lágkolvetna- og hákolvetnamataræði, bætingar í úthaldsíþróttaheiminum, fjögurra daga gravel keppni í Sahara (á móti fyrrverandi Tour de France keppnishetjum), hvernig honum hefur tekist að brenna út á miðju keppnistímabili en líka ná því besta úr sér á meðan hann sinnir 100% vinnu og fjölskyldu.
Fleiri þættir af LANGA - hlaðvarp
- 103. TOBBI vill að þú sýnir karakter, egódauði í ultrahlaupum, hvernig talaru við sjálfan þig og 2-0 fyrir UTMB22. september 2026
- 102. Af hverju æfir Klæbo ekki í zone 2? Steindi í Bakgarðinum, Almgren heimsmeistari, Johaug og BLUMMENFELT20. september 2026
- 101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin.4. september 2026
- 100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör2. september 2026
- 99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM21. ágúst 2026
- Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma18. ágúst 2026






