6. Fyrsti maraþonhlaupari Íslands - Hafsteinn Sveinsson
Hafsteinn Sveinsson hljóp, fyrstur Íslendinga, heilt maraþon árið 1957.
Hann verður 95 ára gamall eftir fáeinar vikur og hló að mér þegar ég spurði hvort hann hafi keyrt sjálfur í stúdíóið.
Aðstæður til að æfa hlaup á sjötta áratugnum voru vægast sagt lélegar svo Hafsteinn þurfti að láta sér nægja að klofa snjó í stígvélum til að komast uppá Ingólfsfjall í kolniðamyrkri eftir 17 tíma vinnudag.
Í þættinum rekur hann sína sögu:
Af hverju hann byrjaði að stunda hlaup
Æfingarnar sem hann stundaði til að verða betri hlaupari
Hvers vegna maraþonið kallaði á hann
Áhrifin sem maraþonhlaupið hafði á fólk í kringum hann
Stuðninginn sem hann fékk frá mömmu sinni og hvernig hún gaf besta ráðið fyrir maraþonhlaupið mikla (og hann hefði betur tekið mark á)
Hvernig draumurinn um Ólympíuleikana í Róm 1960 þurrkaðist út á einum degi
Sigling sem hann fór hringinn í kringum landið á 16 feta bát (það er mjög lítill bátur)
Hvernig hann heldur sér svona hraustum í dag
Fleiri þættir af LANGA - hlaðvarp
- 103. TOBBI vill að þú sýnir karakter, egódauði í ultrahlaupum, hvernig talaru við sjálfan þig og 2-0 fyrir UTMB22. september 2026
- 102. Af hverju æfir Klæbo ekki í zone 2? Steindi í Bakgarðinum, Almgren heimsmeistari, Johaug og BLUMMENFELT20. september 2026
- 101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin.4. september 2026
- 100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör2. september 2026
- 99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM21. ágúst 2026
- Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma18. ágúst 2026






