Ljósmæðralíf: Hólmfríður Garðarsdóttir á hamfara- og átakasvæðum í 27 ár
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Hólmfríður Garðarsdóttir ljósmóðir eða Hófí eins og hún er kölluð. Í viðtalinu segir hún frá störfum sínum sem sendifulltrúi hjá Rauða Krossinum og reynslu sinni af því að vera ljósmóðir á hamfara- og átakasvæðum víðsvegar um heiminn auk þess að taka þátt í þróunarverkefnum. Meðal þeirra landa sem hún hefur starfað í síðastliðin 27 ár eru Afganistan, Bosníu-Hersegovína, Mósambík, Malaví, Suður-Súdan, Norður-Kórea, Úkraína, Íran og Írak. Það er ótrúlegt að heyra af lífi eða öllu heldur lífsstíl Hófíar sem er alltaf klár þegar kallið kemur, gjarnan með stuttum fyrirvara. Hún hefur vægast sagt magnaðar sögur að segja af aðstæðum kvenna í barneign þar sem oft þarf að beita útsjónarsemi til að yfirstíga hinar ýmsu hindranir. Hnetumauk í Súdan til þess að bæta upp fyrir blóðleysi, soðna ýsan á Íslandi til að kjarna sig þegar heim er komið og allt þar á milli með Hófí. Komið með!
Fleiri þættir af Legvarpið
- Hyperemesis með Hrabbý Lóu10. september 2026
- Nálastungur og bransa-sögur með Gullu25. júlí 2026
- Ófrjósemi og frjósemislækningar með Ingunni18. maí 2026
- Áhrif nikótíns á meðgöngu á nýbura með Snjólaugu og Björk17. apríl 2026
- Fæðingarparís með Ósk1. apríl 2026
- Trans fólk og barneignir með Alexander6. febrúar 2026

