Leikjavarpið #54 – Hápunktar frá Game Awards og Indiana Jones and the Great Circle

· Tölvuleikir

Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 54. þætti Leikjavarpsins. Rætt er um hápunkta frá The Game Awards 2024 þar sem farið er yfir hvaða leikir unnu í stóru verðlaunaflokkunum og síðast en ekki síst hvaða nýju leikir voru kynntir á verðlaunahátíðinni, þar má meðal annars nefna nýjan The Witcher leik! 
Sveinn rýnir í  Indiana Jones and the Great Circle sem er nýr Indiana Jones hasar- og ævintýraleikur þar sem þú spilar sem Indiana Jones í fyrstu persónu, hvernig ætli það sé að virka? Bjarki segir frá Balatro, indíleiknum sem hefur náð gríðarlegum vinsældum. Hvað gerir þennan spilaleik annars svona sérstakan? 
Þetta og margt fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins.

Fleiri þættir af Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins