Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins

nordnordursins

Tölvuleikir

Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.

Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin

Sveinn, Daníel og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Sveinn rýnir í nýja Wolverine leikinn og segir að leikurinn sé töluvert betri en margir vilja meina og að sum gagnrýni sem leikurinn hefur fengið sé að hluta til ósanngjörn. Bjarki er byrjaður á Control Resonant og segir frá fyrstu hughrifum sínum á leiknum eftir að hafa spilað fyrstu tvo klukkutímana. Daníel er í skýjunum - eða öllu heldur geimnum - eftir að hafa klárað Outer Wilds og aukapakkann. Nýlegar leikjafréttir eru einnig til umræðu. Má þar nefna nýjan heim í Minecraft, breytingar hjá Bungie, stöðuna hjá Microsoft og Halo svo eitthvað sé nefnt. Í lok þáttar fjöllum við um nýju Resident Evil bíómyndina en þeir Sveinn og Daníel mættu á sérstaka forsýningu í boði GameTíví.

Leikjavarpið #71 - Zelda 40 ára, BlizzCon og Onimusha: Way of the Sword

Farið er um víðan völl í nýjasta þætti Leikjavarpsins. Fyrir nokkrum dögum hélt Nintendo ekki eina - heldur tvær leikjakynningar. Í annari þeirra var endurgerðin af The Legend of Zelda: Ocarina of Time kynnt nokkuð ítarlega í tilefni 40 ára afmælis The Legend of Zelda leikjaseríunnar. Nintendo kynntir fleiri leiki, þar á meðal Kirby and the World Beyond og Metroid Ravenous, ásamt varningi eins og amiibos og sérstakri Zelda útgáfu af Switch 2 leikjatölvunni. Daníel og Sveinn ræða um Onimusha: Way of the Sword sem þeir hafa verið að spila undanfarna daga. Við snertum aðeins á BlizzCon þar sem stór World of Warcraft uppfærsla var kynnt til sögunnar, Diablo V og nýr væntanlegur StarCraft skotleikur. Sveinn prófaði nýja uppfærslu á Xbox sem leyfir Xbox eigendum að fá stafrænt eintak af þeim leikjum sem spilarar eiga í diskaformi, Sveinn segir frá hvernig sú tækni virkar. Allt þetta og miklu fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!

Leikjavarpið #70 - GTA VI sýnishornið og diskalaus framtíð Sony

Leikjavarpið er mætt aftur til leiks eftir ljúft og gott sumarfrí! Í þættinum rýnum við í nýjasta sýnishornið úr Grand Theft Auto VI sem var frumsýnt á Netflix á dögunum, þar er um að ræða yfir 20 mínútur af nýju efni. Einnig tökum við fyrir ákvörðun Sony um diskalausa framtíð fyrir PlayStation, breytir það einhverju eða er algjör óþarfi að bjóða upp á diska? Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór og Sveinn Aðalsteinn segja sínar skoðanir á málinu. Þetta og margt fleira í sjötugasta þætti Leikjavarpsins!

Leikjavarpið #69 - Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia

Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5, tæknina frá Nvidia, og síðast en ekki síst fjalla um Pokopia - nýja Pokémon leikinn sem hefur notið mikilla vinsælda á Switch 2 leikjatölvunni. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!

Leikjavarpið #68 - God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel segir okkur frá God of War Sons of Sparta sem er heldur óhefðbundinn God of War leikur í platformer-stíl. Einnig er rætt um stórar fréttir úr heimi Microsoft Xbox og Sony PlayStation; Phil Spencer kveður Microsoft og Sony lokar Bluepoint Games leikjastúdíóinu. Ýmislegt fleira er til umræðu, þar á meðal byrjendaráð fyrir nýjan Switch 2 eiganda, Pokémon fréttir, leikir í spilun, nýr leikur væntanlegur frá nýju íslensku leikjafyrirtæki, upphitun fyrir gjafaleik og margt fleira.

Leikjavarpið #67 - State of Play og Nioh 3

Daníel Rósinkrans, Steinar, Bjarki og Sveinn fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þætti 67 af Leikjavarpinu. Okkar helsti Nintendo sérfræðingur fer yfir það helsta frá Nintendo Direct: Partner Showcase þar sem væntalegir Switch og Switch 2 leikir voru kynntir. Steinar og Sveinn rýna í Nioh 3 og fjalla um nýjunga, helstu kosti og galla leiksins ásamt því að segja frá sínu áliti. Að lokum rennum við yfir leiki sem voru kynntir á State of Play kynningu Sony, þar sem við fengum meðal annars nýjar God of War fréttir! Einnig förum við yfir það helsta sem við erum að spila þessa dagana, ræðum Cairn stuttlega, minnumst á nýja Diablo II viðbót og margt fleira.

Leikjavarpið #66 - Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War

Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir - FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem byggja á tölvuleikjum í kjölfar þess að tilkynnt var að Ólafur Darri mun fara með hlutverk Þórs í God of War sjónvarpsþáttum! Það gleymdist að nefna nokkra áhugaverða leikjatitla í seinasta þætti þegar farið var yfir væntanlega tölvuleiki á árinu 2026, þau mistök eru plástruð í lok þáttar <3 Ást, friður og tölvuleikir.

Leikjavarpið #65 - Væntanlegir leikir 2026

Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hvaða leikir voru spilaðir yfir jólahátíðina. Þetta og margt fleira í þætti #65 af Leikjavarpinu!

Leikjavarpið #64 - Allt það helsta frá The Game Awards 2025

Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims - The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vann flest verðlaun þetta árið. Hvað stóð upp úr og hvað vantaði? Einnig segjum við frá helstu leikjakynningum kvöldsins þar sem nýir leikir voru kynntir til sögunnar, þar á meðal nýr væntanlegur leikur frá Larian Studios, leikjafyrirtækinu sem gerði Baldur's Gate 3. Þetta og margt margt fleira.

Leikjavarpið #63 - Icelandic Game Fest og The Game Awards

Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir eru tilefndir til The Game Awards og er farið yfir valda verðlaunaflokka en Clair Obscur: Expedition 33 er tilnefndur til flestra verðlauna. Fleira er til umræðu eins og leikir í spilun, Golden Joystick Awards og margt fleira.

Þér gæti líka líkað...