Leikjavarpið #29 - Deathloop, Nintendo Direct og NBA2K22
Tölvuleikjanördarnir Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi, Bjarki Þór og Daníel Páll fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í nýjasta þætti Leikjavarpsins, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins. Í þættinum rýnir Sveinn í fyrstu persónu skotleikinn Deathloop sem kom í verslanir fyrr í þessum mánuði. Leikurinn hefur hlotið lof gagnrýnenda og gefa leikjasíðurnar IGN og Gamespot leiknum 10 af 10 mögulegum í einkunn. Nýjasta Nintendo Direct kynningin er krufin þar sem Nintendo kynnti nýtt efni úr væntanlegri Mario kvikmynd, sýndi úr Bayonetta 3 og margt fleira. Steinar fræðir hlustendur um körfuboltaleikinn NBA2K22 þar sem spilarar þurfa ekki eingöngu að hugsa um troðslur og varnarleikinn heldur þurfa einnig að huga að tískumálum, pósum og töffara stigum.
Nýr dagskrárliður er kynntur til sögunnar sem kallast Leikjaklúbburinn. Þar eru hlustendur hvattir til að spila valda smelli með strákunum í Leikjavarpinu, fyrsti leikur Leikjaklúbbsins er Day of the Tentacle Remastered frá árinu 2016. Hlustendur geta svo fylgst með gang mála, tekið þátt í umræðum og komið með hugmyndir að leik til að spila í Leikjaklúbbnum á Instagrammi Nörd Norðursins.
Þetta er aðeins brot af því sem fjallað er um í þættinum en einnig eru teknar fyrir ferskar tölvuleikjafréttir, rýnt í Diablo II: Resurrected og Death Stranding Director's Cut á PlayStation 5. Hægt er að hlusta á þáttinn á heimasíðu Nörd Norðursins og öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Tónlist:
Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod
Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon
License: https://filmmusic.io/standard-license
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
Mynd:
Breytt mynd úr Deathloop og NBA2K22
Fleiri þættir af Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
- Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin28. september 2026
- Leikjavarpið #71 - Zelda 40 ára, BlizzCon og Onimusha: Way of the Sword14. september 2026
- Leikjavarpið #70 - GTA VI sýnishornið og diskalaus framtíð Sony31. ágúst 2026
- Leikjavarpið #69 - Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia26. mars 2026
- Leikjavarpið #68 - God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox2. mars 2026
- Leikjavarpið #67 - State of Play og Nioh 316. febrúar 2026
