Leikjavarpið #7 - Doom Eternal, Animal Crossing, PS5 og indíleikir

· Tölvuleikir

Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um það helsta í heimi tölvuleikja. Sveinn baðar sig í blóðpollum Doom Eternal og segir okkur frá sinni upplifun. Daníel skellti sér í Animal Crossing og er orðinn stórskuldugur eftir stutta spilun. Bjarki segir frá indíleikjunum Mosaic og Spirit of the North sem sækir innblástur til Íslands.

Efnisyfirlit þáttarins:
* Ný íslensk eSports-sjónvarpsstöð kynnt til sögunnar,
* PlayStation 5 kynningin,
* Nintendo Direct Mini,
* Doom Eternal,
* Mosiac,
* Spirit of the North,
* Half Life: Alyx,
* Animal Crossing,
* Væntanlegir leikir.

Fleiri þættir af Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins