Leikjavarpið #75 – GTA VI upphitun og The Legend of Zelda: Ocarina of Time
Hitum upp fyrir útgáfu Grand Theft Auto VI og ræða um allt milli himins og jarðar, eins og spenninginn sem fylgir útgáfunni, ýmiskonar fróðleik eins og stærðina á kortinu, útgáfukvöld Elko, kóða í boxi og fleira. Einnig er fjallað um hvað foreldrar þurfa að hafa í huga við útgáfu GTA VI - og hvort samband við tölvuleikjakarakter geti mögulega flokkast sem framhjáhald í raunveruleikanum!?
Annað stórt viðfangsefni þáttarins er The Legend of Zelda: Ocarina of Time. Nintendo sérfræðingurinn Daníel Rósinkrans segir sína skoðun á leiknum en hann er mikill aðdáandi Zelda-leikjaseríunnar og búinn að spila alla leikina. Stenst leikurinn væntingar sem einn af betri Zelda-leikjum? Hvaða breytingar er að finna á milli upprunalega leiksins frá árinu 1998 og nýja leiksins (sem kemur eingöngu út á Switch 2)?
Fleiri þættir af Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
- Leikjavarpið #74 – Spennandi leikjaútgáfa í nóvember og gervigreind part 227. október 2026
- Leikjavarpið #73 - Gervigreind, leikjaútgáfan og meira af Control Resonant12. október 2026
- Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin28. september 2026
- Leikjavarpið #71 - Zelda 40 ára, BlizzCon og Onimusha: Way of the Sword14. september 2026
- Leikjavarpið #70 - GTA VI sýnishornið og diskalaus framtíð Sony31. ágúst 2026
- Leikjavarpið #69 - Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia26. mars 2026
