Samfélagsmiðill fyrir vitvélar, lífsfyllingin, skíðastökk
Í lok janúar opnaði nýr samfélagsmiðill og fylltist fljótlega af notendum. Það er svosem ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að hann var ekki ætlaður mannfólki heldur vitvélum, gervigreindar-agentum. Tryggvi Freyr Elínarson rekur atburðarásina í kringum hinn umtalaða samfélagsmiðil Moltbook og segir frá tækninni á bakvið hann, agentunum eða stafrænu erindrekunum sem munu hafa gríðarleg áhrif á næstu árum.
Eiríkur Örn Norðdahl sendir okkur pistil um leit hans að nýju áhugamáli sem á að veita honum lífsfyllingu.
Og við beinum sjónum okkar að vetrarólympíuleikunum og pælum í skíðastökki. Eiríkur Guðmundsson fjallaði um fegurð þessarar mögnuðu íþróttar í innslagi í Lestinni fyrir 8 árum síðan og ræddi þá við Einar Örn Jónsson íþróttafréttamann.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026