Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í Lestinni í dag kryfjum við nýlegan slagara Sienna Spiro, tilfinningaþrungnu ballöðuna Great Expectations. Poppfræðingur Lestarinnar, Friðrik Margrétar-Guðmundsson fer með okkur í saumana á hráum tilfinningum og hljóðheimi bresku tónlistarkonunnar. Við hugum líka að kvikmyndum og hvernig áhorfendur skynja oft meira en þeir endilega skilja . Í næstu viku leiðir Ása Helga Hjörleifsdóttir, kvikmyndagerðarkona og dósent við kvikmyndalistadeild Listaháskóla Íslands, námskeið um kvikmyndina Mulholland Drive, hjá Opna Listaháskólanum. Ása Helga leit við í hljóðstofu og ræddi um þetta sköpunarverk David Lynch út frá ýmsum hliðum.

Heimildarmyndin You Can See Everything eftir Nathan Fielder og Lance Oppenheim er frumsýnd í vikunni. Myndin fjallar um fyrrum vonarstjörnu í nýsköpunargeiranum, Elizabeth Holmes, sem árið 2022 var sakfelld fyrir stórtæk fjársvik. Saga Holmes hefur farið víða í hlaðvörpum, sjónvarpsþáttaseríum og ógrynni fjölmiðlaumfjallana. Það er þó ekki síst leikstjórinn Nathan Fielder sem trekkir að, og einkennandi frásagnarháttur hans sem hann hefur þróað síðustu ár í heimildarmyndaþáttaröðum eins og Nathan For You og The Rehearsal. Myndin fjallar um síðustu daga Holmes með fjölskyldu sinni áður en hún þarf að afplána 11 ára fangelsdóm. Mikil eftirvænting ríkir fyrir myndinni og lestarstjórar fjalla um höfunda og viðfangsefni myndarinnar, og víðsjárvert samand þeirra á milli. Án þess að spilla neinu! Haukur Már Helgason flytur okkur pistil um blikur á lofti á atvinnumarkaði í kjölfar örar þróunar í gervigreind. Hálfgerðar heimsendaspár úr kísildal má segja að séu reglulegur viðburður í dag og Haukur er með hugann við forsendurnar fyrir því hvernig tæknifrömuðir úttala sig um framtíðina. Loks heyrum við í upptökustjóranum Bergi Þórissyni. Hann er meðal þeirra Íslendinga sem hlutu tilnefndingu til Grammy verðlauna í vikunni. Í flokknum Best Engineered Album, Non Classical komst á lista lag Rosalíu, Yves Tumor og Bjarkar, Berghain. Í tilnefningunni voru heil 17 nöfn listuð upp, og þar á meðal nafn Bergs. Sölvi hringdi í Berg og forvitnaðist um upptökustjórn, alþjóðlegt samstarf í tónlistargeiranum og hvort hann ætli ekki að skella sér til LA á hátíðina í febrúar.

Katrín Helga Ólafsdóttir hefur verið að sækja listamenn heim í þeirra vinnurými. Að þessu sinni fer hún niður í miðbæ Reykjavíkur, fyrir ofan pizzastaðinn Hornið á vinnustofu Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur. Geta fræ verið ættargripir og geta plöntur verið menningararfur? Í nýútkomnu Tímariti Máls og menningar birtist grein eftir Vilborgu Bjarkadóttur, doktorsnema í þjóðfræði. Í henni ber hún saman fræbankann á Svalbarða og Grasagarð Reykjavíkur. Við ræðum þetta, rófur og tómata við Vilborgu í þætti dagsins.

Hvað gerist ef þú færir Njálu yfir á nútímaíslensku? Og skreytir hana með kúrekamyndum? Aftan á nýrri útgáfu Jónasar Björns á Brennu Njálsssögu stendur 'Lestur er bestur' og það er von hans að með því að gera Njálu aðgengilegri muni fleiri lesa hana, sérstaklega fleira ungt fólk. Sölvi Halldórsson hittir Jónas Björn Pálsson, listamann, á vinnustofu hans úti á Granda. Við fáum pistil frá París, Einar Már Jónsson, sagnfræðingur og rithöfundur er með hugan við samsæriskenningar fyrri tíma. Gæti þér þótt vænt um lítinn vélmennahund? Finnska listakollektívið Wauhaus var með verk á Reykjavik Dance Festival í ár sem nefnist The Companion. Hátíðin fór fram um helgina og við ræðum við þá Jussi og Jarko um samkennd, manngervingu og kúrulegan vélmennahund.