Snorri Másson og leikhús grimmdarinnar
Í Lestinni undanfarna mánuði höfum verið að reyna að átta okkur á pólitískum breytingum á hægri væng stjórnmálanna bæði í Bandaríkjunum og hér á Íslandi. Nýja hægrinu svokallaða - sem leggur minni áherslu á frjálsan markað og meiri áherslu á íhaldssöm gildi. Hér á landi er mest áberandi andlit þessa nýja hægris líklega Snorri Másson, fyrrum blaðamaður, hlaðvarpari, og nýkjörinn varaformaður Miðflokksins. Við spjöllum við Snorra um þessa meintu íhaldsbylgju Z-kynslóðarinnar og hvernig hægristjórnmál líta út árið 2025.
Leikhúsið og tvívera þess eftir Antonin Artaud kemur út á morgun í íslenskri þýðingu Trausta Ólafssonar. Við spjöllum við Trausta um leikhús grimmdarinnar - leikhús sem hefur þó ekkert með ofbeldi að gera.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026