Serbneskir stúdentar mótmæla, Talib Kweli, Bannað að hlæja

· Menning & listir

Undanfarna mánuði hafa farið fram einhver stærstu mótmæli í sögu Serbíu. Þau hófust eftir að 15 manns létust í slysi á lestarstöð í Novi Sad, næststærstu borg landsins, en hafa farið að snúast um spillingu og stjórn forsetans Aleksandar Vucic. Háskólastúdentar hafa drifið mótmælin áfram með setuverkföllum, götulokunum, flautum og risastórum samlokum. Við spjöllum við Zarko Urosevic, lífeindafræðing sem starfar við Landsspítalann, en mætti á mótmælin þegar hán var heima í Serbíu í janúar.

Hermann Stefánsson flytur okku þriðja pistilinn í pistlaröð sem hann kallar bíslagið. Að þessu sinni ákveður hann að stofna stjórnmálaflokk og flytur okkur stefnuræðu sína - og það er bannað að hlæja.

Rappgoðsögnin Talib Kweli úr hljómsveitinni Black Star kemur fram á tónleikum í Gamla Bíó næsta fimmtudag. Davíð Roach Gunnarsson segir frá rapparanum hagyrta.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin