Erfitt væb í Söngvakeppninni + besta myndin á Óskarnum

· Menning & listir

Við förum yfir atburðarrásina í kringum Söngvakeppnina og þau ólíku sjónarmið sem takast á hvort sniðganga eigi keppninna eða ekki. Við ræðum líka kynþáttafordómana í kommentakerfinu í kjölfar keppninnar og upplifun tveggja kvenna af erlendu bergi af því, þeirra Miriam Petru og Kristínar. Eru kynþáttafordómar að aukast eða eru þeir einungis sýnilegri? Og yrði Bashar Murad einhverntímann nógu íslenskur til þess að sigra Söngvakeppnina?

Að lokum fáum við lokapistil í Óskarsyfirferð Pálma Freys, hann fer yfir flokkinn besta myndin.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin