Audible, ættfræði, John Wilson, Ísraelsfáni á Breiðabliksvelli
Við ræðum leik Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv við Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamann. Hefði Breiðablik getað sniðgengið, hætt við, neitað að keppa? Og hvaða afleiðingar hefði það haft í för með sér? Og hvenær mega íþróttir og pólitík blandast, hvenær ekki?
Eiríkur Guðmundsson fór í heimsókn í Skerjafjörðinn árið 2018 og ræddi við Odd F. Helgason, ættfræðing. Oddur og kona hans Unnur Björg Pálsdóttir féllu frá í vikunni, til stóð að fá Odd í Lestina, en við huggum okkur við þetta viðtal sem leyndist í kistu Ríkisútvarpsins.
Kristján vill segja upp Audible áskriftinni sinni, en getur það ekki, sama hvað hann reynir. Og Hjalti Freyr Ragnarsson, tónlistarmaður og pistlahöfundur í Lestinni hefur sérstakan áhuga á sjónvarpsþáttunum How To With John Wilson. Þættirnir koma úr smiðju Bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar HBO og eru á mörkum þess að vera vídjólist og sjónvarp.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026