Dúskhúfuklæddir kanar eru mættir á Airwaves, nýja Scorcese-myndin
Þátturinn verður að miklu leyti tekinn undir tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem hefst formlega í dag. Þriggja daga tónlistarhátíð í miðborg reykjavíkur.
Við fáum til okkur tvær tónlistarkonur sem spila á hátíðinni í ár, Sölku Valsdóttur úr Cyber og Neonme, og Brynhildi Karlsdóttur úr Kvikindi. Þær ræða um bransa speed-dating, að spila á tónleikum með smábarn, og það að sleikja svitann af bringunni á bassaleikaranum í Vintage Caravan.
Við kíkjum lika niður i Kolaport þar sem gestir eru byrjaðir að sækja armböndin sín. Þar rekumst við á Sindra Ástmarsson, dagskrárstjóra hátíðarinnar, hollenska aðdáendur Árnýjar Margrétar og nokkra dúskhúfklædda ameríkana - flesta frá Denver í Colorado.
Undir lok þáttar rýnir Kolbeinn Rastrick í nýja kvikmynd Martins Scorcese, Killers of the flower moon.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026