Lestarfestival í þúsundasta Lestarþættinum
Lestin brunar af stað í þúsundasta skipti. Lestarþáttur númer nákvæmlega eitt þúsund. Um það bil 55 þúsund mínútum af Lest hefur verið útvarpað hérna á Rás 1, 916 klukkutímar, rúmlega 38 dagar af Kanye West, Netflix, gervigreind, Hegel, Húgó, MeToo, mannöldinni, uppistandi, raunveruleikasjónvarpi, samfélagsmiðlum, poppi og pólitík.
Að þessu tilefni höldum við hátíð, litla sjálfshátíð eðða Lestarfestival. Við bjóðum gömlum vinum í partý og gerum það sem fólk gerir í öllum góðum partýum, förum í spurningaleik. Til okkar koma Þröstur Helgason, fyrrverandi dagskrárstjóri Rásar 1, og Anna Marsibil Clausen, ritjstóri hlaðvarpa á Ríkisútvarpinu og fyrrum Lestarstjóri. Við heyrum brot úr gömlum þáttum.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026